Nú er ferðanefndin búin að sitja sveitt yfir plani næstu helgar. Planið er svo hljóðandi:
Við munum leggja af stað rúmlega 9 á laugardagsmorgni 12. júlí n.k . Hist verður heima hjá mér, þ.e Tröllaborgum 23 í Grafarvogi. Ég legg til að við mætum hingað kl 9 og sameinumst í bíla.
9:00 Mæting í Tröllaborgir 23
9:20 Lagt af stað í Hvalfjörðinn
10:00 Komin í Botn Hvalfjarðar, gönguleið að Glym
10-13 Ganga og ásamt nestis stoppi (Getum alveg verið til kl 14)
13- 15 Keyrsla frá Hvalfyrði til Húsafells, gætum kíkt á Hraunfossa og Barnafoss?
15- 17 Komin í Húsafell, tjaldað, djúsað, getum farið í sund, golf, á brennu.
Mæli með einnota grilli, þar sem ég veit ekki til þess að það sé grillaðstaða í Húsafelli.
Sunnudagur
Heimför þegar okkur hentar:-)
Munið eftir, góðum skóm til að ganga í, tjaldi, svefnpoka, dýnu, hlýjum fötum, ekki hlýjum fötum, sundfötum, nærfötum, mat, drykk, bjór, lopapeysunni, pollabuxum, húmornum, góða skapinu og...
Einstaklingsgjald á tjaldstæði er 750 kr.
Við verðum að hafa samband við starfsmann áður en við töldum!
Það er salernisaðstaða á tjaldstæðinu, vaskar og þvottahús.
Góð umgengni skiptir miklu máli!
Hér er listi yfir þátttakendur:
Lilja, Ásta, Ragga, Sóley, Elsa, Vilborg, Kristbjörg, Erla, Eva, Rósa?, Helga?, Þuríður?, Rúna?
Kær kveðja
Ferðanefndin.